Kríli að leika á bókasafninu

Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 11:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
-
Börn

Krílastundir í Spönginni

Þriðjudagur 8. júlí 2025

Athugið, krílastundir í Spönginni verða án starfsmanns í júlí en heitt verður á könnunni og öll með kríli hvött til að kíkja á safnið, mæla sér mót við vini, nú eða jafnvel eignast nýja í óvæntu spjalli í barnadeildinni, hver veit. 

 

Tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við leggjum áherslu á notalega samveruleiklestur og spjall og syngjum saman við gítarundirleik starfsmanns. Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með kríli og skiptast á sögum um lífið og tilveruna.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að lesa á staðnum og korthafar geta tekið með sér heim. 
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins


Nánari upplýsingar veitir: 
Katrín Guðmundsdóttir, deildarsjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | s: 411 6230