
Um þennan viðburð
Krílastundir í Spönginni
Athugið, krílastundir í Spönginni verða án starfsmanns í júlí en heitt verður á könnunni og öll með kríli hvött til að kíkja á safnið, mæla sér mót við vini, nú eða jafnvel eignast nýja í óvæntu spjalli í barnadeildinni, hver veit.
Tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við leggjum áherslu á notalega samveru, leik, lestur og spjall og syngjum saman við gítarundirleik starfsmanns. Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með kríli og skiptast á sögum um lífið og tilveruna.
Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að lesa á staðnum og korthafar geta tekið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarsjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | s: 411 6230