Tónlistarfólk í dimmum skógi, draugur

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Börn
Tónlist

Haustfrí I Jazzhrekkur | Hrekkjavökutónleikar

Föstudagur 27. október 2023

JAZZHREKKUR er tónleikadagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem reiddir verða fram jazztónar byggðir á þjóðtrú um að á tímamótum verði skilin milli mannheims og heims hins yfirnáttúrulega óljós, álfar, huldufók og uppvakningar birtast.

Það er söngkonan Ingibjörg Fríða Helgadóttir, píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir og kontrabassaleikarinn Leifur Gunnarsson sem fræða börnin um jazztónlist en gæta þess þó að hræða þau ekki of mikið.

Tónlistin er samin af Leifi Gunnarssyni og mega tónleikagestir búast við fjörugum og fræðandi tónleikum þar sem boðið verður upp á virka þátttöku í gegnum söng, klapp og dans.

Aðgangur frír og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.

Viðburður á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is