Göngugarpurinn Einar Skúlason leiðir gönguglaða lesendur um einstæðar leiðir í nágrenni höfuðborgarinnar. Farið er um fjöll og dali, yfir úfin hraun, jarðhitasvæði og gróðurvinjar. Gömlum þjóðleiðum er fylgt og staldrað við á slóðum drauga og fornkappa. Stórskemmtilegur ferðafélagi. (Heimild: Bókatíðindi)