• Bók

Ertu Guð, afi?

Emma Soffía er ellefu ára, á pabba sem er alltaf úti á sjó og mömmu sem reynir sig reglulega við Íslandsmetið í fýlu. Hún hefur aldrei séð afa Afríku fyrr en hann birtist á tröppunum með hundinn Tarzan og eftir það verður ekkert eins og áður. Hér leiðir Þorgrímur Þráinsson lesendur sína á ný mið í fylgd heillandi persóna sem eru í senn djúpvitrar og skemmtilegar. Sagan var valin úr fjölda handrita sem bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin 2010. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn