Röð
Heimspekistofnun Háskóla Íslands. Rit #12
Hvað er meðvitund? Er hún nauðsynleg fyrir hugsun? Geta tölvur haft meðvitund? Skýra raunvísindin tilurð og virkni meðvitundar eða er það eingöngu á færi sálvísinda? Valinkunnir sérfræðingar á ólíkum sviðum ræða hér viðfangsefnið og kynna nýjustu hugmyndir sínar. Bókin endurspeglar þverfaglega umræðu um gamalkunn efni úr heimspeki og sálfræði, sem nýrri fræðasvið, svo sem tölvunarfræði og taugalífeðlisfræði varpa óvæntu ljósi á. (Heimild: Bókatíðindi)