“Læknirinn í Silju fékk yfirhöndina, hún spýttist á fætur og ýtti viðkomandi aftur niður í snjóinn. Ekki hreyfa þig, þú getur verið brotinn, sagði hún skipandi og byrjaði strax að þreifa útlimi mannsins sem lá þarna. Hvar finnur þú til? spurði hún með læknisröddinni. Svimi? Höfuðverkur? Veistu hvaða dagur er? Hver er forsetinn yfir Íslandi? Maðurinn í skaflinum hætti að brjótast um og fór að skellihlæja. Mig kennir alls staðar til, það mætti halda að þú værir fíll miðað við fallþungann. Ég er ekki með svima en höfuðverk á byrjunarstigi af öllu spurningaflóðinu, það er fyrsti í rjúpu og þú marðir fenginn illilega þegar þú hentir þér á þær, Dorrit er forseti þó nafni minn beri titilinn.” Silja er héraðs- og fæðingarlæknir úti á landi, sennilega einhvers staðar í Húnavatnssýslum. Hún býr rétt við þjóðveginn í gömlum sveitabæ sem hún gerir upp með vinkonum sínum. Það fylgir því álag að vera læknir á Íslandi, sérstaklega yfir vetrartímann, og Silja fer ekki varhluta af því. Jafnframt stríða þær vinkonur allar við ýmsa drauga úr fortíðinni, sem erfitt er að kveða niður. Óli sjúkrabílstjóri og vegagerðarmaður hefur aðsetur í kjallaranum hjá þeim stöllum og hrífur eitt og eitt hjarta. Silja er sjálfstætt framhald af ástarsögunni Hörpu, sem kom út fyrir ári síðan hjá Vestfirska forlaginu. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn