
Íbúarnir í Malarbæ segja að ógæfa þeirra hafi byrjað daginn sem Malla Smiðs fæddist enda geti ekkert gott hlotist af barni sem beri rúnatákn – þetta rauðbrúna merki á hönd stúlkunnar – sem sumir kalla galdrarúnina. Galdrar hafa bara vandræði í för með sér – eða hvað? Á sjöunda ári kynnist Malla Smiðs dularfullum eineygum förumanni og örlög hennar eru ráðin. Æsispennandi ævintýri sem byggir á norrænum goðaheimi. (Heimild: Bókatíðindi)