Ragnheiður Gestsdóttir: Sverðberinn
  • Bók

Sverðberinn

Kvöldið sem slysið varð, kvöldið sem þau gerðu hlé á spilamennskunni til að sækja Veru í vinnuna, var Signý loksins búin að finna nafn á persónuna sína. Leda skyldi hún heita. Eftir slysið vaknar Leda – sverðberinn – í ókunnum heimi þar sem hún á fyrir höndum erfitt og hættulegt verkefni. Á meðan sefur Signý þungum svefni á spítalanum og enginn veit hvort hún vaknar nokkurn tíma aftur. Ragnheiður Gestsdóttir hefur áður sent frá sér verðlaunabækurnar Leikur á borði og 40 vikur. Hér er á ferðinni spennandi ævintýrasaga sem enginn leggur frá sér fyrr en að lestri loknum. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn