Lýra hefur yfirgefið sinn heim í leit að meiri vitneskju um hið dularfulla Duft. Í borg krakkanna, Cittágazze, kynnist hún Will sem er á flótta úr enn öðrum heimi eftir að hafa orðið manni að bana. Saman leita þau uppi föður Wills sem hvarf með dularfullum hætti á norðurslóðum fyrir ellefu árum. Eins og Gyllti áttavitinn er Lúmski hnífurinn spennandi og stórbrotin fantasía fyrir börn og fullorðna - annar hluti þríleiks sem farið hefur sigurför um heiminn. (Heimild: Bókatíðindi)