Þunglyndi er einn algengasti sjúkdómur í heimi og talið er að einn af hverjum fjórum þjáist af honum einhvern tíma á ævinni. Samt hefur hann löngum verið sveipaður skilningsleysi og fordómum. Þessi bók lýsir á ljósan og aðgengilegan hátt einkennum þunglyndis, orsökum, meðferð af ýmsu tagi og öðrum leiðum til úrbóta. Hún er ætluð jafnt sjúklingunum sjálfum sem aðstandendum og öðrum sem þurfa að takast á við líf með þunglyndi. (Heimild: Bókatíðindi)