• Bók

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Aðild
Björn BjarnasonBjörn Th. ÁrnasonGunnar EgilsonÞorkell Örn ÓlasonÞorsteinn JónssonÁsgeir H. Steingrímsson
Röð
Tónlist og tónlistarmenn á Íslandi #1
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar stórafmæli á þessu ári en hún hefur verið boðberi tónlistarmenningar í íslensku þjóðlífi í hálfa öld. Í bókinni, sem er í senn afmælisrit og 1. bindið í ritröð um tónlist og tónlistarmenn á Íslandi, er saga hljómsveitarstarfs á Íslandi rakin allt frá árinu 1921 þegar Íslendingar settu saman hljómsveit í tilefni af konungskomu. Greint er rækilega frá stofnun, þróun og vexti Sinfóníuhljómsveitarinnar á umbrotatímum í íslensku samfélagi og er byggt m.a. á fjölmörgum viðtölum við hljóðfæraleikara úr hljómsveitinni. Í ritinu er einnig hljóðfæraleikaratal, skrá yfir alla tónleika hljómsveitarinnar, hljómplötur og geisladiska. Bókina prýðir mikill fjöldi mynda en margar þeirra hafa ekki birst áður. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn