• Bók

Í hlutverki leiðtogans : líf fimm forystumanna í nýju ljósi

Hvenær íhugaði Vigdís Finnbogadóttir að segja af sér forsetaembætti? Hverjir eru helstu ráðgjafar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur? Hvers vegna bauð Davíð Oddsson sig fram til flokksformanns gegn æskufélaga sínum Þorsteini Pálssyni? Hvaða mistök gerði Hörður Sigurgestsson á forstjórastóli? Af hverju ákvað Kári Stefánsson að segja skilið við prófessorsstöðu við Harvard-háskóla og stofna Íslenska erfðagreiningu? Í þessari fróðlegu bók birtast persónuleg viðtöl við fimm þjóðkunna forystumenn þar sem þeir veita lesendum einstaka innsýn í líf sitt og leiðtogahlutverkið. Höfundur bókarinnar, Ásdís Halla Bragadóttir, ritar einnig sérstakan kafla sem nefnist: Listin að vera leiðtogi. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn