Lokað fyrir innskráningu með rafrænum skilríkjum

Frá og með 1. september verður lokað fyrir innskráningu með rafrænum skilríkjum eða íslykli á Mínar síður.

Notendur geta enn sem áður skráð sig inn með kennitölu og lykilorði. Notað er sama lykilorð og fyrir leitir.is og Rafbókasafnið.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Starfsfólk Borgarbókasafnsins er reiðubúið til aðstoðar í síma eða tölvupósti, og á bókasafninu.

Skrá nýtt lykilorð

Nýtt lykilorð, innskráning

Ef þú veist ekki lykilorðið þitt getur þú skráð nýtt lykilorð hér: Skrá nýtt lykilorð.

Þar tekur við form, þar sem þú skráir kennitölu smellir á „Senda“.

(Í forminu er hægt að skrá inn netfang, í stað kennitölunnar. En ef netfangið er ekki á skrá, eða skráð fyrir fleiri en einn notanda (t.d. fyrir bæði foreldara og barn) þá virkar sú leið ekki.)

Þú færð svo sendan tölvupóst á netfangið, sem skráð er í bókasafnskerfinu, með tengli fyrir endursetningu lykilorðs.

Ef þú færð engan tölvupóst má vera að netfangið þitt sé ekki á skrá hjá okkur. Hafðu samband og við skoðum málið, sjá netföng og símanúmer bókasafnanna.

Nýtt lykilorð, póstur

Nýtt lykilorð

Smelltu á tengilinn sem þar birtist, skráðu nýtt lykilorð og veldu „Senda“.

Flokkur
UppfærtLaugardagur, 31. ágúst, 2024 10:52