Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Köttur á heitu blikkþaki
Köttur á heitu blikkþaki verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins þann 28. desember næstkomandi. Tímalaus klassík Tennessee Williams í leikstjórn Þorleifs Arnar.
Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Þorleifur Örn Arnarssson leikstjóri segir frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Litla svið Borgarleikhúsins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Um sýninguna:
Í þessu meistaraverki Tennessee Williams kemur fjölskylda saman til að fagna stórafmæli föðurins, en þegar líða tekur á kvöldið er fögnuðurinn fljótur að snúast upp í andhverfu sína. Erfðadeilur, sálarflækjur og kynferðisleg spenna leiða persónur verksins á tilfinningaleg jarðsprengjusvæði, þar sem baráttan fyrir tilverunni, frelsinu og sannleikanum tekur yfir. Hvað erum við tilbúin að gera til að horfast ekki í augu við raunveruleikann?
Þorleifur Örn er þekktur fyrir umfangsmiklar sýningar og listræn stórvirki, en í þetta sinn tekst hann á við sígilt verk með innilegri nálgun og mögnuðum leikhópi. Þetta magnaða verðlaunaverk hefur aðeins einu sinni áður verið sett á svið í atvinnuleikhúsi á Íslandi en um fádæma vinsældir þess þarf ekki að fjölyrða.
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn á Facebook.
Leikritið á vef Borgarleikhússins.
Nánari Upplýsingar veitir:
Emelía Antonsdóttir Crivello
emelia@borgarleikhus.is | 568 5500
Guttormur Þorsteinsson
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204