Glæsilegum árangri fagnað á uppskeruhátíð sumarlestursins
Það var líf og fjör á uppskeruhátíð sumarlestursins í Grófinni sem var haldin 25. ágúst síðastliðinn. Heppnir þátttakendur sumarlestursins fengu afhenda vinninga, Sleipnir - lestrarfélagi barnanna lék á alls oddi og hressir krakkar frá Dans Brynju Péturs skemmtu gestum.
Við þökkum öllum börnum fyrir þátttöku sína í sumarlestrinum. Þau sem eiga eftir að klára lestraráskoranirnar þurfa ekki að örvænta, það verður hægt að fá límmiða áfram fyrir ofurhetjuspilið á meðan birgðir endast.
Krakkar frá Dans Brynju Péturs kemmtu gestum.
Aría 7 ára hlaut aðalvinning sumarlesturs Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar, miða fyrir tvo á sýninguna Nýjustu töfrar og vísindi í Tjarnarbíói.