Um þennan viðburð
Sundlauganótt í Dalslaug
Í tilefni Sundlauganætur sem er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar Reykjavíkurborgar verður lifandi stemmning milli kl. 17 og 22 í Miðdal, sem hýsir Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal, Dalslaug og Dalskóla.
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Opin föndursmiðja – Smiðjan
17:00-19:00. Gestir geta sest niður og föndrað saman. Skapandi og notaleg samverustund. Efniviður á staðnum.
Fjölskyldujóga – Miðgarði
17:00-18:00. Jógastund fyrir fjölskyldur eða fullorðinn og barn/börn sem vilja hreyfa sig saman og eiga saman gæðastund í gegnum leik, nánd og hreyfingu. Þátttakendur fara í gegnum jógastöður, gera öndunaræfingar, bregða á leik og enda á ljúfri slökun ásamt Önnu Rós Lárusdóttur, höfundi bókarinnar Jógastundar, sem leiðir tímann. Skráning er ekki nauðsynleg en þau sem eiga jógadýnur mega endilega hafa þær meðferðis.
Anna Rós Lárusdóttir, rithöfundur og jógakennari
Dalslaug
Frítt í sund – Úti og innilaug
17:00 – 22:00. Öll velkomin í sund, engin aðgangseyrir. Skemmtileg og hressandi afþreying.
Tal og tónar undir vatnsborðinu – Innilaug
17:00 – 22:00. Hlustaðu á leikandi létta tóna í bland við stutt brot úr upplestri rithöfunda í innisundlauginni. Hljóðverkin eru spiluð í gegnum sérstaka hátalara og eru aðeins greinanleg undir yfirborði laugarinnar. Róandi og forvitnilegt í senn. Flothettur á staðnum.
Hrynjandi og heitir pottar – Útilaug
17:00 – 22:00. Skemmtileg tónlist sem gleður og nóg af heitu vatni. Teiti fyrir líkama og sál.
Nánari upplýsingar veitir:
Stella Sif Jónsdóttir | Viðburðir
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is