
Um þennan viðburð
Tími
13:30 - 14:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Liðnir viðburðir
Hannyrðastund í Spönginni
Fimmtudagur 11. maí 2023
Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Á fimmtudögum er hannyrðastund í Spönginni. Öll velkomin, byrjendur og lengra komin, í notalega stund í grænu sófunum á annarri hæð. Við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap.
Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim. Hér má finna frekari upplýsingar um hannyrðastundir á safninu og tillögur að lesefni.
Viðburður á facebook
Nánari upplýsingar:
spongin@borgarbokasafn.is | 411 6230