Liðnir viðburðir
Fjölskyldumorgnar | Viltu vera memmm?
Miðvikudagur 7. desember 2022
Það er gaman að hitta aðra foreldra/forsjáraðila með börnin sín, syngja saman, leika og læra.
Skráning er óþörf og öll velkomin en stundirnar eru hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri. Heitt á könnunni.
Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir fjölskyldur til þess að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt.
Memmm býður upp á fjölskyldumorgna, opinn leikskóla Memmm Play, alla miðvikudaga
kl. 10-12 á neðri hæðinni í Gerðubergi.
Komdu og vertu Memmm!
Fyrir nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is