Liðnir viðburðir
Dúó Stemma | Tónleikhús
Sunnudagur 20. nóvember 2022
Dúó Stemma skipa Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari. Sem Duo Stemma syngja þau, segja frá og leika á ýmis hljóðfæri, bæði hefðbundin og heimatilbúin.
Herdís og Steef eru bæði í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hafa starfað saman í Dúó Stemmu í fjöldamörg ár. Árið 2008 fengu þau viðurkenningu frá IBBY samtökunum fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.
Herdís Anna og Steef ætla að bregða á leik og flytja vetrarlega skammdegisdagskrá með jólaívafi.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 -6255