Kaffistundir
Spjall og umræður
Fróðleikskaffi | Frá fræi til plöntu
Fimmtudagur 20. október 2022
María Norðdahl frá Innigörðum kynnir ræktun allt árið.
Hvað þarf til að koma plöntum af stað frá fræi, hvort sem á að setja þær út í potta og beð þegar sumrar eða til að hafa inni á heimili allt árið?
Farið verður yfir mikilvægi fjögurra grunnþátta sem þurfa að vera til staðar ef árangur á að nást við ræktun; ljóss, vatns, næringar og hita.
Kynningin er opin öllum en miðast við þau sem eru að stíga fyrstu sporin í ræktun.
Þau sem eru lengra komin eru líka hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar:
Jónína Óskarsdóttir
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6250