Um þennan viðburð
Tími
10:00 - 11:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir
Jóga í boði indverska sendiráðsins á Íslandi
Fimmtudagur 23. júní 2022
Alþjóðlegur dagur jóga er haldinn hátíðlegur ár hvert um allan heim þann 21. júní.
Í tilefni þess ætlar indverska sendiráðið á Íslandi að bjóða gestum Borgarbókasafnsins upp á tíma í jóga. Í Úlfarsárdalnum mun tíminn fara fram í salnum hjá okkur fimmtudagsmorguninn 23. júní klukkan 10:00.
Tilvalið að skella sér í sund eftir á í Dalslaug.
Tímarnir verða í boði á eftirfarandi stöðum:
Í Gerðubergi miðvikudaginn 15. júní kl. 10:00-11:00
Í Úlfarsárdal fimmtudaginn 23. júní klukkan 10:00-11:00.
Í Spönginni miðvikudaginn 6. júlí kl. 10:00-11:00.
Kennari á vegum sendiráðsins leiðir tímana og jógadýnur verða á staðnum.
Öll innilega velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Stella Sif Jónsdóttir, sérfræðingur | viðburðir og fræðsludagskrá