8 manns, stjórn Ungra umhverfissinna 2021-22
Ungir umhverfissinnar

Um þennan viðburð

Tími
10:15 - 11:45
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Liðnir viðburðir

Ungir umhverfissinnar

Þriðjudagur 29. mars 2022

Hvaða þýðingu hafa umhverfismál fyrir þig?

Umhverfismál eru mörgum hugleikin, ungum sem öldnum, enda snertir umhverfið líf okkar allra og þeirra sem á eftir okkur koma.

Félagasamtökin Ungir umhverfissinnar voru sett á stofn árið 2013 en tilgangur félagsins er að vera vettvangur ungs fólks á Íslandi til að láta gott af sér leiða í umhverfismálum.

Ungir umhverfissinnar vilja með starfi sínu hvetja til upplýstrar umræðu um umhverfismál og berjast fyrir sjálfbærri þróun, náttúruvernd og grænu hagkerfi

Hægt verður að kynnast starfi félagsins þriðjudaginn 29. mars næstkomandi milli kl. 10:20-11:45 en þá ætlar nokkrir stjórnarmeðlimir Ungra umhverfissinna að kíkja í heimsókn á Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal og segja okkur frá því sem þau eru að fást við.

Viðburðurinn er ætlaður ungu fólki en öll eru velkomin!

Viðburður á Facebook.

Vefsíða Ungra umhverfissinna.

 

Nánari upplýsingar:

Stella Sif Jónsdóttir, sérfræðingur | viðburðir og fræðsludagskrá
stella.sif.jonsdottir@reykjavik.is