Leshringurinn 101 - Grófinni
Leshringurinn 101 hittist á 5. hæð í Grófinni. Lesnar eru bækur af ólíkum toga. Notaleg skáldskapar- og kaffistund í sófanum á safninu þar sem spjallað er um lestrarreynslu og upplifun af skáldverkum, bæði sögum og ljóðum.
Fjórði fundur, þriðjudagurinn 30. nóvemer kl. 17.15-18.15. Bók dagsins er 10 mínútur og 38 sekúndur í þessari undarlegu veröld eftir Elif Shafak, í íslenskri þýðingu Nönnu B. Þórsdóttur.
Dagskrá haustsins:
Þriðjudagur 21. september kl. 17.15 – 18.15
Álabókin – Sagan um heimsins furðulegasta fisk eftir Patrik Svensson.
Íslensk þýðing: Þórdís Gísladóttir.
Patrik Svensson var gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík 2021.
Þriðjudagur 12. október kl. 17.15 – 18.15
Að borða Búdda. Líf og dauði í tíbeskum bæ eftir Barbara Demick.
Íslensk þýðing: Uggi Jónsson.
Barbara Demick var gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík dagana 8.-11. september 2021.
Þriðjudagur 2. nóvember kl. 17.15 – 18.15
Áhugaverðar og nýlegar íslenskar ljóðabækur:
Hún sem stráir augum eftir Björk Þorgrímsdóttur.
Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur.
Þriðjudagur 30. nóvember kl. 17.15 – 18.15
10 mínútur og 38 sekúndur í þessari veröld, eftir Elif Shafak.
Íslensk þýðing: Nanna B. Þórsdóttir.
Sjá stutta kynningu á höfundinum hér.
Umsjón: Soffía Bjarnadóttir, verkefnastjóri bókmennta. Skráning í leshringinn í gegnum netfangið: soffia.bjarnadottir@reykjavik.is
Leshringurinn er opinn öllum, hámarks fjöldi er 12 manns.