Um þennan viðburð
Fræðakaffi | Hulduþjóðir Evrópu
Landamæri innan Evrópu hafa færst til gegnum aldirnar en þjóðirnar sem þar hafa búið um aldir lifa áfram, oft í skugga fjandsamlegra yfirvalda. Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur segir frá lítt þekktum þjóðum á borð við Rútena, Húsúla og Bojka, sem eru meðal þeirra fjörutíu hulduþjóða sem hann hefur heimsótt. Saga þeirra er oft reyfarakennd og menningin gjarnan gjörólík því sem ríkir í viðkomandi löndum. Yfir og allt um kring er svo átakamikil saga Evrópu.
Þorleifur Friðriksson er doktor í sagnfræði og eftir hann liggja ýmis rit, m.a. saga Verkmannafélagsins Dagsbrúnar. Bók hans, Hulduþjóðir Evrópu, kom út hjá Veröld árið 2016.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is