
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal tilnefnt sem VIRKT fyrirtæki 2026
Atvinnutenging VIRK hefur tilnefnt Borgarbókasafnið Úlfarsárdal sem eitt af 12 fyrirtækjum og stofnunum sem eiga möguleika á að hljóta viðurkenninguna VIRKT fyrirtæki 2026. Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Úlfarsárdal, segist líta á viðurkenninguna sem hvatningu til að halda áfram á sömu braut.
„Okkur þykir mjög vænt um þessa tilnefningu og erum þakklát. Þetta er okkur ótrúlega kært og mikill heiður að hljóta þessa tilnefningu sem við lítum á sem viðurkenningu fyrir gott samstarf og hvatningu til að halda áfram á sömu braut,“ segir Unnar Geir.
„Fyrir okkur er þetta samstarf samt eiginlega bara sjálfsagt,“ bætir hann við, „þetta er hluti af grunngildum okkar og í raun hluti af stefnu Borgarbókasafnsins um að vera opið og aðgengilegt rými fyrir öll.“
Í rökstuðningi með tilnefningunni segir meðal annars að viðmót starfsfólks Borgarbókasafnsins Úlfarsárdal og viðhorf gagnvart þjónustuþegum atvinnutengingar VIRK, sem búi í mörgum tilfellum við skerta starfsgetu, sé til fyrirmyndar.
Virk hafi viljað koma því á framfæri með þessum hætti og óski safninu hjartanlega til hamingju með það.
„Framlag ykkar skiptir sköpum og þið sýnið samfélagslega ábyrgð í verki með því að bjóða einstaklingum í atvinnutengingu tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði.“
Rannsóknir hafi sýnt að það að vera með vinnu sé mikilvægt fyrir bæði heilsu og velferð einstaklingsins og því mikilvægt að auka þátttöku þessa hóps á vinnumarkaði.
„Einlægar þakkir til ykkar fyrir gott samstarf og megi það halda áfram að vaxa og dafna í framtíðinni,“ segir að lokum.
Öðrum hvatning til góðra verka
Atvinnutenging VIRK er í samstarfi við hundruð fyrirtækja og stofnana varðandi aðstoð við einstaklinga sem eru að ljúka starfsendurhæfingu og vilja stíga skrefin aftur út á vinnumarkaðinn.
Viðurkenningin VIRKT fyrirtæki var veitt í fyrsta sinn árið 2023 til fyrirtækja sem sinnt hafa samstarfinu við VIRK sérlega vel og sýnt samfélagslega ábyrgð - og þannig hvatt önnur fyrirtæki til góðra verka.
Á myndinni:
Daði Lárusson, atvinnulífstengill Virk afhendir starfsfólki Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal viðurkenningarskjal og blóm.
Nattapat Khongchumchuen, Sigurjón Bergþór Daðason, Unnar Geir Unnarsson, Tinna Birna Björnsdóttir og Gunnhildur Sigurhansdóttir. (Á myndina vantar Harald Erni Haraldsson).