
Um þennan viðburð
Sumarsmiðja | Teiknað í anda Ormhildar
Komdu í þessa skapandi smiðju og lærðu hvernig Þórey Mjallhvít ímyndaði sér söguna af Ormhildi, vinsælu sjónvarpsþáttaröðinni sem gerist í fjarlægri framtíð þar sem jöklar hafa bráðnað og þjóðsagnaverurnar Íslands eru komnar fram í dagsljósið.
Dagskrá smiðjunnar:
Í þessari smiðju gefst krökkum tækifæri til að læra um karakterhönnun og sögugerð. Þórey mun sýna þátttakendum vinnuna á bak við Ormhildarsögu, karakterhönnunarferlið og söguferlið. Krakkarnir munu síðan búa til sína eigin karaktera og myndasögu byggða á þeim.
Aldur: Börn fædd 2014, 2015, 2016 og 2017.
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga, 12.-14. ágúst kl. 10:00-12:00.
Skráning á Abler
Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250