
Um þennan viðburð
Húslestur | Límonaði frá Díafani
Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu síðdegis, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?
Í vor verður boðið upp á huggulegar upplestrarstundir á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal. Lesið verður upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn sem Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, mun sjá um. Einnig mun gefast kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga.
Nú er komin að öðrum húslestri þar sem lesið verður upp úr skáldævisögunni Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur en hún var mest lesna og lánaða bókin í flokki ævisagna og bóka almenns efnis árið 2025 á Borgarbókasafninu. Hér má sjá topp tíu listann.
Og hér má finna topp tíu listana í öllum flokkum.
Um bókina:
“Ella Stína er átta ára þegar hún fer út í heim með fjölskyldunni. Í Grikklandi er allt með öðrum brag en heima á Seltjarnarnesi; eðlur skjótast um veggi, mandarínur og ólífur vaxa á trjánum, geitur ganga um með bjöllur um hálsinn og örsmáu bænahúsin í hlíðinni hljóta að vera sérstaklega fyrir krakka. Ella Stína skottast um allt með yngri bræður sína en foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna kemur Ella Stína aftur til Grikklands, hvað er þá orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var?
Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka en sló nú síðast í gegn með Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda. Límonaði frá Díafani kallast sterklega á við þessar bækur um leið og farið er með lesendur í heillandi könnunarferð um bernskuna undir grískri sól.”
Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn.
Komum saman og eigum notalega og nærandi stund á bókasafninu.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is