
Um þennan viðburð
Húslestur | Í skugga tránna
Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu eftir langan dag, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?
Í vor verður boðið upp á huggulegar upplestrarstundir á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal. Lesið verður upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn sem Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, mun sjá um. Einnig mun gefast kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga.
Fyrsta bókin sem lesið verður upp er skáldsagan Í skugga trjánna eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur en hún var mest lesna og lánaða bók ársins 2025 á Borgarbókasafninu.
Um bókina:
Í skugga trjánna er skáldævisaga í anda Skeggs Raspútíns sem kom fyrst út árið 2016 og hlaut frábærar viðtökur bæði lesenda og gagnrýnenda. Guðrún Eva Mínervudóttir tekst hér á við veruleikann af einlægni og áræðni, svo úr verður áhrifamikil saga – full af húmor, hlýju og skáldlegri visku.
Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn.
Komum saman og eigum notalega stund á bókasafninu.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is