Morjane og maneskja méð sólargrímu standa við sjávarsíðuna, í bakgrunni sést í Akrafjall og Skarðsheiði

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Tungumál
Enska
Tónlist

Tónleikar | Morjane Ténéré

Föstudagur 27. febrúar 2026

Morjane Ténéré er söngvaskáld sem sækir innblástur í þjóðlaga- og blústónlist. Hún hefur leikið á meira en 300 tónleikum um alla Evrópu, þar sem hún nær til og hreyfir við áhorfendum með rödd sinni. Nafnið Ténéré þýðir eyðimörk á tungumáli Tuareg hirðingjanna frá Norður-Afríku. Í lögum sínum kannar Morjane viðfangsefni eins og tengingu okkar við annað fólk, náttúru, dýr og allt það sem gerir okkur bæði lítil og risastór í senn. Von er á nýrri plötu frá henni þann 17.apríl, sem ber heitið I wish I could be an Angel. Á þessum tónleikum kemur tríó fram sem er skipað:

Morjane Ténéré: Gítar og söngur

Jón Logi Pálma: Bassi, kontrabassi

Christian Helgi: Trommur, slagverk, flauta og hljómborð

Merki