Stefna og aðgerðaáætlun Borgarbókasafnsins 2025-2028

Miðpunktur mannlífs í hverfunum er yfirskrift stefnu Borgarbókasafnsins 2025-2028. Stefnan er unnin í samvinnu við starfsfólk, notendur bókasafna og hagaðila. Við vinnuna var horft til menningar- og þjónustustefnu borgarinnar og metnaðarfullar stefnur stærri bókasafna um allan heim notaðar til hliðsjónar.

 

Gildin okkar eru:

FAGMENNSKA  |  VIRÐING  |  MENNING  |  AÐGENGI

Þau endurspegla fyrir hvað við stöndum sem skipulagsheild. Þau eru starfsfólki innbástur og leiðarljós í framlínustörfum og upplýsingamiðlun. Þau eru lykilsteinar í brúarsmíð þekkingar og hugmynda fólks, starfsfólks jafnt sem notenda.

 

Áherslur okkar eru:

1.  Leiða samtal, uppbyggingu, þróun og nýsköpun

2.  Efla lestur, læsi, miðlun, tengsl og samstarf

3.  Deila þekkingu, upplýsingum, rými og hlutum

4.  Jafna aðstöðu, aðgengi, tækifæri og þátttöku

 

Stefna Borgarbókasafnsins 2025-2028 - forsíðumynd