
Um þennan viðburð
Smásmiðja | Grunnatriði í tónlistarforritinu Logic Pro
Lærum að búa til tónlist í tónlistarforritinu Logic Pro!
Í þessari Smásmiðju förum við yfir grunnatriðin í pródúseringu og tónlistarsköpun í tónlistarforritinu Logic Pro. Við lærum hvað forritið hefur upp á að bjóða, kynnum okkur hvernig er hægt að taka upp tónlist, vinna í hljóðum og hljóðblanda allskonar tónlist. Eftir vinnustofuna gefst tími til að vinna í eigin verkefnum með aðstoð starfsfólksins á staðnum.
Á Verkstæðinu er ókeypis aðgengi að Apple Logic Pro X forritinu og mörgum fleiri skapandi forritum. Komdu í Smásmiðjuna eða bókaðu tölvu og lærðu upp á eigin spýtur!
Smásmiðjur | Opnir aðstoðartímar á Verkstæðinu Grófinni
Í Smásmiðjunum lærum við allt milli himins og jarðar sem tengist skapandi tækni og tölvuvinnslu. Á Verkstæðinu eru fullbúnar tölvur með öllum helstu forritum fyrir myndvinnslu, tónlistarsköpun eða hljóðvinnslu og tilvalið að mæta í Smásmiðjurnar fyrir þau sem langar að læra á forritin og nýta sér búnaðinn.
Við kynnumst einhverju nýju í Smásmiðjunum annan hvern mánudag frá kl. 16:30–17:30. Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til kl. 18:00.
Engin skráning, bara mæta!
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100