Lestrarstund með Sleipni

Sleipnir - Lestrarstund

Komdu með á hugarflug!

Nú býðst leikskólakennurum að panta lestrarstund með Sleipni fyrir elstu börnin í leikskólanum. Við kynnum Sleipni fyrir börnunum og ræðum um kraft ímyndunaraflsins, skáldskapinn, ævintýrið, lestraránægjuna og hugarflugið sem lestur býður upp á. Sagan Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju og Gunnar Karlsson er lesin upp ásamt fleiri sögum.

Veljið safn hér að neðan til að bóka sögustund með Sleipni.

Að lokinni lestrarstund með Sleipni:

  • Börnin fá Sleipnisbókamerki
  • Leikskólakennarar fá Vetrarævintýri Sleipnis með heim ásamt hugmyndabanka Sleipnis
  • Foreldrar / forráðamenn fá skilaboð um að barnið hafi hitt Sleipni og þau eru hvött til að lesa fyrir börnin
     

Frá 2016 hefur Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO boðið upp á sögustundir með Sleipni í samvinnu við Borgarbókasafnið með það að markmiði að öll leikskólabörn í Reykjavík eigi þess kost að hitta Sleipni áður en þau hefja grunnskólanám og kynnist lestrargleðinni.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér á heimasíðu Bókmenntaborgarinnar.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is

Bókanir