Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Bókmenntir
Börn
Sýningar

Sýning | Skissur verða að bók – Linn Janssen

Fimmtudagur 21. nóvember 2024 - Sunnudagur 22. desember 2024

Staðsetning: 2. hæð, Hringurinn

Á þessari sýningu getur þú séð inn í töfrandi heim barnabókanna. Við fáum að fylgjast með hugmyndavinnu og skissugerð sem að lokum verður að fullsköpuðum myndum í barnabók.

Myndhöfundurinn Linn Janssen sýnir skissu- og hugmyndaferlið á bak við myndirnar í bókinni Einstakt Jólatré eftir Benný Sif Ísleifsdóttur. Bókin kom út fyrir ári og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndlýsingar.

Linn Janssen útskrifaðist af teiknibraut Myndlistaskólans í Reykjavík 2022. List hennar einkennist af blöndu af klippimyndatækni, trélitateikningu og gvass málningu.
Á sýningunni er hægt að skoða vinnuferli hennar, frá fyrstu blýantsskissum til lokamyndanna, sem og áhöldin og efnin sem hún notaði.

Sjá viðburð á Facebook.

Boðið verður uppá klippimyndasmiðju fyrir börn í tengslum við sýninguna.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100

Bækur og annað efni