Sagan af Dís Sigurðardóttur gerist í menningarborginni Reykjavík, höfuðborg Íslands, sumarið 2000. Dís vinnur við móttöku á Hótel Borg, leigir íbúð við Laugaveginn með frænku sinni að norðan, slær sér upp með strákum og skemmtir sér með vinunum. En nú verður stúlkan að svara því hvað hún ætli sér þegar "hún verður stór". Nýstárleg, drepfyndin og leikandi létt skáldsaga um lífið á Íslandi hér og nú, full af hlýju, gleði og skilningi, en um leið háðsk úttekt á áningarstöðum aldamótakynslóðarinnar á leið sinni til frægðar og frama. Það eru vinkonur Dísar sem segja sögu hennar. Bók mánaðarins í nóvember. (Heimild: Bókatíðindi)
Subjects
Íslenskar bókmenntir Skáldsögur