Spjallhópur | Stafrænn mínimalismi
Viltu draga úr áráttukenndri skjánotkun og minnka stafrænt áreiti?
Komdu þá í spjallhópinn Stafrænn mínimalismi (e. Digital Minimalism)!
- Við skoðum heimspekina á bak við stafræna naumhyggju
- Ræðum hugtök úr bókinni Digital Minimalism: Choosing a focused life in a noisy world eftir Cal Newport.
- Veltum fyrir okkur aðferðum til að draga úr stafrænni áráttuhegðun eins og 30 daga stafrænni hreinsun og að endurheimta tómstundir
Hvenær:
Annan hvern þriðjudag kl. 16:45-18:15.
16. janúar / 30. janúar / 13. febrúar / 27. febrúar / 12. mars / 26. mars
Ekki er nauðsynlegt að mæta í öll skiptin.
Hvar:
Við vínylplötusvæði á 5. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni.
Öll velkomin! Athugið að samræðurnar fara fram á ensku.
Vekur þetta áhuga þinn? Það er ekki nauðsynlegt að hafa lesið bókina, bara mæta og taka þátt í áhugaverðum samræðum!
Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka
karl.james.pestka@reykjavik.is | 411 6122
Materials