Leshringur Borgarbókasafninu Árbæ
LeshringurinnÝmislegt Borgarbókasafninu Árbæ

Leshringur | Ýmislegt

Leshringurinn Ýmislegt hittist annan mánudag í mánuði kl. 16:30 - 17:30.  Yfir sumartímann er tekið frí í þrjá mánuði.

Hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að hitta annað fólk og spjalla um bækur á léttum nótum. Lesa á milli línanna og leyfa sér að láta hugann reika. Lesin er ein bók á mánuði auk einnar smásögu/smáprósa. Bækurnar geta verið af ýmsum toga, eftir íslenska jafnt sem erlenda höfunda.  

Skráning ekki nauðsynleg. Öll velkomin!

 

Leslistinn á haustönn 2025: 

13. október    
Smámunir sem þessir, eftir Claire Keegan
Glampar eftir Kristínu Arngrímsdóttur, velja eina sögu 

10. nóvember 
Lítil tilraun til betra lífs: leynileg dagbók Hendriks Groen, 83 1/4 ára, eftir Hendrik Groen
Þöglu myndirnar, eftir Gyrði Elíasson, velja einn

8. desember 
Eldarnir, eftir Sigríði Hagalín 
Rétt áðan, eftir Illuga Jökulsson, velja eina  sögu

 

Leshringurinn á Facebook 

Sjá yfirlit um alla leshringi Borgarbókasafnsins.

Upplýsingar og umsjón:

Kristín Guðbrandsdóttir, sérfræðingur 
kristin.gudbrandsdottir@reykjavik.is | 411 6250

Category
UpdatedTuesday September 30th 2025, 15:55