Um þennan viðburð

Tími
13:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Sýningar

Sýning | Breiðholts boogie | Hafsteinn Michael

Laugardagur 14. mars 2026 - Laugardagur 25. apríl 2026

Myndheimur Hafsteins á sýningunni Breiðholts boogie er óvenjulegur en um leið kunnuglegur: listamaðurinn vinnur markvist að því að skapa sér sína eigin goðafræði til að vinna með.  Þetta er heimur sem lýtur eigin táknkerfi og eigin innra landslagi.  Í verkum hans er ekki mikið rými fyrir “ytri heiminn” honum er nánast hafnað og allar tilvísanir í hann eins og í framhjáhlaupi.  Þess í stað kafar Hafsteinn inn í persónulega heimsmynd sem virkar oft forn og dulúðleg.  Litirnir í verkunum eru dökkir og jarðbundnir sem blandar fortíð, nútíð og framtíð saman í kyngimögnuðu andrúmslofti. 

Markvíst er vísað í forn trúarbrögð og goðsögur án þess þó að vísa beint í ákveðnar sögur.  Áhorfendum kann að þykja sem þeir eigi að kannast við goðsögurnar á sýningunni en í raun og veru eru þær ekki til.  Heldur eru kunnugleg minni sett í nýtt samhengi og nýjar goðsögur líta dagsins ljós.   

Stundum má greina hugmyndir alkemista í verkunum, þau eru full af táknmyndum sem vísa í efni um leið og þau draga fram hugmyndir um umbreytingar. Umhverfið er órætt, þetta eru ekki staðir heldur staðleysur sem viðfangsefni myndanna eru staddar í.  Stundum minnir umhverfi þó á eitthvað sem gæti verið Reykvískt landslag. 

Hafsteinn virðist byggja upp eigin táknkerfi þar sem persónur, form og tákn endurtaka sig og mynda innra tungumál. Þetta gerir verk hans óræð auk þess sem þau virka eins og brot úr stærra kerfi sem áhorfandinn fær aðeins að sjá hluta af og vekja því upp spurningar um hvað var á undan og hvað tekur við?  Áhorfandanum er svo eftirlátið að leita að merkingu og um leið reyna að tengjast einhverju æðra sem er kannski ekki til? 

 

 

Hafsteinn Michael Guðmundsson  er fæddur 11.nóvember 1976 og útskrifaðist vorið 1999 úr MHÍ.  Hafsteinn var farinn að vera virkur í sýningarhaldi strax árið 1994 en þá sýndi hann ásamt þremur vinum sínum  í Listhúsinu Laugardal, þegar þeir voru aðeins 18 ára. Eftir útskrift var hann strax mjög vikur í myndlistarsenunni, sérstaklega þeirra hliðar hennar sem hægt væri að kenna við jaðarlist. En hann hefur verið óhræddur við að sýna jöfnum höndum á viðurkenndum sýningarstöðum sem og óhefðbundnum.  Hafsteinn hefur fengið mikið lof fyrir verk sín, hvort sem þau hafa verið olíumálverk, grafík eða teikningar. Hann hefur  haldið um tuttugu einkasýningar og tekið þátt í kringum tuttugu samsýningum. Þá hef  Hafsteinn verið virkur á öðrum vettvangi  en hann var til dæmis listrænn stjórnandi hjá samfélagsmiðlinum GogoYogo í rúm þrjú ár, unnið við leikmyndagerð í t.d. Íslensku Óperunni, Borgarleikhúsinu og við hin ýmsu kvikmyndaverkefni.  Hafsteinn hefur spilað með fjölmörgum hljómsveitum og gefið út sólóefni undir merkjum Rafsteins. 

 

Nánari upplýsingar veitir

Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Borgarbókasafninu Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170