Hönnunarmars 2025 | Krílalaut

Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 12:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-2 ára
Tungumál
-
Börn

Hönnunarmars | Krílalautin með ÞYKJÓ

Sunnudagur 6. apríl 2025

Prófum Krílalautina í Tilraunastofu ímyndunaraflsins!

Á HönnunarMars bjóða hönnunarteymið ÞYKJÓ og Borgarbókasafnið krílum á aldrinum 0-2 ára og forráðafólki þeirra að koma og upplifa Krílalautina, sérstakt svæði fyrir þau allra yngstu á barnahæðinni í framtíðarbókasafninu við Tryggvagötu.

ÞYKJÓ sýnir frumgerðir sérhannaðar fyrir barnasvæðið, við leikum okkur í Krílalautinni og fáum að prófa ýmsar hugmyndir af hugmyndaborðinu.

Öll börn á aldrinum 0-2 ára ásamt forráðafólki eru velkomin. Viðburðurinn er ókeypis, engin skráning. 

Eftirfarandi viðburður er einnig í boði á Tilraunastofu ímyndunaraflsins
5. apríl kl. 13:00-15:00: Skýjaborgir með ÞYKJÓ | Skapandi smiðja fyrir 5-10 ára


Nánar um Tilraunastofu ímyndunaraflsins á HönnunarMars
Vefsíða Hönnunarmars 2025.

Tilraunastofa ímyndunaraflsins er staðsett í Tryggvagötu 15, í húsnæðinu sem í augnablikinu stendur autt, en er tengt við Grófarhús. Þetta húsnæði verður hluti af nýju og umbreyttu bókasafni. 
 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri nýsköpunar
gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | 411 6114