
Um þennan viðburð
HönnunarMars | Skýjaborgir með ÞYKJÓ
Tilraunastofa ímyndunaraflsins á Hönnunarmars.
ÞYKJÓ og Borgarbókasafnið bjóða þér á flug með sér!
Í þessari skapandi smiðju skoðum við og prófum ýmsar frumgerðir sem hönnunarteymið ÞYKJÓ hefur hannað fyrir barnahæðina í framtíðarbókasafninu við Tryggvagötu. Undir leiðsögn hönnunarteymisins gefum við svo ímyndunaraflinu lausan tauminn og búum til okkar eigin skýjaborgir.
Viðburðurinn er ókeypis, engin skráning.
Eftirfarandi viðburður er einnig í boði á Tilraunastofunni
6. apríl kl. 11:00-12:00: Krílalautin með ÞYKJÓ | 0-2 ára upplifa Krílalautina
Nánar um Tilraunastofu ímyndunaraflsins
Vefsíða Hönnunarmars 2025.
Tilraunastofa ímyndunaraflsins er staðsett í Tryggvagötu 15, í húsnæðinu sem í augnablikinu stendur autt, en er tengt við Grófarhús. Þetta húsnæði verður hluti af nýju og umbreyttu bókasafni.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri nýsköpunar
gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | 411 6114