
Í Borgarbókasafninu er boðið upp á alls konar sýningar. Við vinnum jafnt með einstaklingum og hópum ýmiss konar, innlendum sem erlendum. Í gegnum tíðina höfum við sýnt allt milli himins og jarðar; málverk, gler, leir, ljósmyndir, myndasögur, textíl og þannig mætti lengi telja.
Frítt er inn á allar sýningar og oft bjóðum við upp á viðburði, námskeið og smiðjur í tengslum við sýningarhaldið.
Sýningar sem standa yfir og framundan eru á söfnunum
Langar þig að halda sýningu?
Smelltu á hlekkinn til að sækja um...
Artótek
Viltu leigja eða kaupa listaverk?
Yfirlit yfir sýningarrýmin
Sýningarrýmin eru jafnólík og þau eru mörg en hér að neðan má sjá yfirlit yfir þau rými sem eru í boði. Sýnendur fá aðstoð við kynningu en koma sjálfir að upphengingu og útfærslu sýninganna í nánu samráði við starfsfólk safnanna.

GERÐUBERG
- Stekkur
Sýningarrými í anddyri á neðri hæð Gerðubergs. Hentar vel fyrir ýmiss konar sýningar sem þurfa gott veggpláss.
Einnig er hægt að stilla út á stöplum á völdum stöðum í rýminu.

SPÖNGIN
- Sjónarhóll
Sýningarsalur sem er staðsettur á jarðhæð, innan við unglingadeildina.
Gjarnan eru verk einnig hengd á veggi utan við salinn og vísa þannig veginn inn í rýmið.
Stærð: Um 43 m2. Gólfflötur: 720x600 cm. Lofthæð: 265cm. Upphengirennur eru á veggjum við loft.

GRÓFIN
- Bókatorgið
Rými á jarðhæð sem að öllu jöfnu er notað fyrir útstillingar á safnkosti. Öðru hverju nýtum við þó torgið fyrir uppákomur og sýningar.
Stærð: 64 m2
- Hringurinn
Lítið hringlaga rými á milli barnadeildar og unglingadeildar á 2. hæð í safninu.
Í þessu rými setjum við gjarnan upp myndasögusýningar og einnig smærri sýningar sem höfða til barna eða unglinga.
Verkin eru hengd á vír sem strengdur er í loftið innan hringsins.
- Ljóðahornið
Lítið óhefðbundið sýningarrými á 5. hæð safnsins, þar sem við setjum gjarnan upp sýningar með „ljóðrænni“ tengingu.
Stærð: 19 m2

ÁRBÆR
- Veggurinn
Fjölbreyttar sýningar hafa verið settar upp í gegnum tíðina s.s. málverk, teikningar, textíll, glerverk og margt fleira.
Stærð: Hæð 310 cm / Breidd 510 cm
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
syningar@borgarbokasafn.is





