BORGARBÓKASAFNIÐ

Á sýningunni má sjá afrakstur félagslegs verkefnis þar sem yfir 100 Reykvíkingar komu saman og saumuðu eitt stórt bútasaumsteppi.
Verkefnið, sem tók eitt ár í framkvæmd, fór fram ýmist á Borgarbókasafninu eða Sjóminjasafninu. Yfirleitt er bútasaumur hugsaður til að endurnýta og endurvinna textílafganga, um leið og persónulegar sögur og menningarleg sjálfsmynd eru tjáðar sjónrænt með litum og mynstri. Teppið á sýningunni var eingöngu gert úr gömlum rúmfötum sem voru nýtt sem efniviður í listaverkið.
Fólk úr ýmsum áttum kom að gerð listaverksins
Verkefnið sameinaði ýmsa aðila með það fyrir augum að tengja saman kynslóðir innlendra og aðfluttra Íslendinga – m.a. Íslenska bútasaumsfélagið, saumahópinn Saumó (hópur flóttakvenna á Íslandi), Borgarsögusafn- og Borgarbókasafn Reykjavíkur, Textílfélag Íslands og nemendur frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Með þessu samstarfi skapaði verkefnið tækifæri fyrir samræður, gagnkvæman lærdóm og sameiginlegt höfundaverk. Takmarkað upplag af bók um verkefnið verður til sölu á opnuninni.

Christalena Hughmanick, sem stýrði verkefninu ólst upp í Lancaster-sýslu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum þar sem hún lærði um bútasaum af Amish-fólkinu sem bjó í nágrenninu. Mörg af hennar einstaklings- og hópverkefnum hafa alið af sér einskonar samfélög. Þessar aðferðir í félagslegri listiðkun þróuðust í MFA-námi Christalena við School of the Art Institute of Chicago (2010–12). Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim og hún hefur verið gestalistamaður hjá B28 Nordic Culture Point, American Academy í Róm og Moholy-Nagy Művészeti Egyetem í Búdapest. Starf hennar hefur meðal annars verið stutt af Þróunarsjóði innflytjenda, Fulbright-stofnuninni utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, Grainger Marburg og Lenore Tawney-stofnuninni.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar veita:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Borgarbókasafninu Spönginni
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6242
Christalena Hughmanick
christalena.hughmanick@gmail.com
www.christalenahughmanick.com