BORGARBÓKASAFNIÐ

Á sýningunni segja 35 félagsmenn fjölbreyttar sögur í gegnum textíl, efni og handverk.Verkin byggja meðal annars á minningum, reynslu, stöðum og ímyndun. Þau endurspegla fjölbreyttar aðferðir og nálganir innan textíllistar og textílhönnunar og sýna hvernig efni, form, litir og handverk geta orðið að frásögn.
Textílfélagið hefur starfað frá árinu 1974 og telur nú 118 félagsmenn. Félagar vinna á fjölbreyttan hátt að textílhönnun, myndlist eða hvoru tveggja.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 3. desember kl. 16–18 og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Þorgerður Hlöðversdóttir, formaður Textílfélagsins
textilfelagid@gmail.com
Vefsíða Textílfélagsins