Í anda jólanna | Jóladagatal

Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir sýnir vatnslitaverk sín
Borgarbókasafnið Árbæ
15. nóvember - 10. janúar 2027
Stígðu út úr jólastressinu sem fylgir hátíðunum og leyfðu jólaandanum að umlykja þig.
Á sýningunni Í anda jólanna teljum við niður til jóla frá 1. til 24. desember. Til sýnis verða listaverk máluð með vatnslitum á kringlóttan vatnslitapappír og ekkert þeirra er eins.
Upphaflega hófst dagatalið sem tilraun hjá listakonunni Ölmu til að stíga út úr jólaamstrinu og gefa sér tíma til að njóta augnabliksins. Verkefnið er hvatning til að lifa í núinu og hugleiða stað og stund á annasamasta tíma ársins. Óhætt er að segja að Alma hafi náð markmiði sínu þar sem fjölskylda og vinir fylgdust með birtingu listaverkanna daglega á samfélagsmiðlum. Því lauk síðan með heildardagatali sem er nú til sýnis á Borgarbókasafninu Árbæ.
Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir byrjaði að mála hjá Ljósinu þar sem hún var í endurhæfingarmeðferð eftir að hún greindist með krabbamein. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Gamall áhugi hennar á listmálun kviknaði þegar Alma sótti fjölmörg námskeið hjá Ljósinu þ.á.m. í myndlist og listmeðferð. Einnig hefur Alma lokið tveimur námskeiðum í vatnslitamálun hjá listmálurunum Guðmundi Ármanni Sigurjónssyni og Ragnari Hólm.
Gleðileg jól!
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Árbæ
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavík.is