BORGARBÓKASAFNIÐ

Vatnslitafélag Íslands opnar nú áttundu árlegu samsýningu sína í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Sýningin Sögusvið vísar til tengingar málaralistar og bókverka. Kannað er hvernig myndir geta sagt sögur og texti vakið upp hughrif og nýja merkingu. Hér fléttast saman myndir og texti í skapandi samtali.
Verið velkomin á opnun sýningarinnar laugardaginn 21. nóvember kl. 14.
Á jarðhæð Gerðubergs eru sýnd verk félagsmanna valin af alþjóðlegri dómnefnd. Í bókasafninu á annarri hæð má sjá vatnslitamyndir listakonunnar Erlu Sigurðardóttur en myndskreyting bóka var stór þáttur í listamannsferli hennar.
Vatnslitafélag Íslands var stofnað í febrúar 2019. Eins og nafnið gefur til kynna, er félagið opið öllum sem stunda vatnslitamálun. Félagar eru nú um 270 talsins á aldrinum 18 til 95 ára og eru ýmist atvinnumenn eða áhugamenn í listinni. Tilgangur félagsins er að efla stöðu vatnslitamálunar og stuðla að samvinnu félagsmanna á því sviði. Félagið stendur fyrir listviðburðum með fjölbreyttri fræðslu og sýningarhaldi.
Sýningarnefndina í ár skipa Derek Karl Mundell, Gréta Sörensen, Guðrún Sigurðardóttir, Louise Le Roux og Vilborg Gunnlaugsdóttir.
Í apríl var auglýst eftir myndum meðal félagsmanna Vatnslitafélags Íslands fyrir samsýninguna 2026. Hverjum félagsmanni var boðið að senda inn ljósmyndir af 1-3 verkum.
Dómnefndina þetta árið skipa Ingunn Erna Stefánsdóttir, Jo Lewis (UK) og Sara Vilbergsdóttir. Þær fengu hver um sig 183 nafnlausar ljósmyndir og vissu ekki hver var höfundur hvers verks. Sýningarnefndin fól þeim að velja um 65 verk svo að þau gætu myndað góða heild og sýnt vel þá breidd sem vatnsleysanleg efni á pappír hafa.
Sýnendur eru:
Aðalbjörg Þórðardóttir / Abba · Aðalheiður Birgisdóttir · Anna Björk Bjarnadóttir · Anna Ólafsdóttir Björnsson · Arnheiður Sigurðardóttir · Ása Kolka · Ástþor Jóhannsson · Björg Atla · Derek Mundell · Elín Guðmundsdóttir · Gréta Sörensen · Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir · Guðbrandur Magnússon · Guðmundur Ármann Sigurjónsson · Guðný Dóra Ingimundardóttir · Guðrún Hreinsdóttir · Guðrún Ingibjartsdóttir · Gunnar Ómar Lillie Magnússon · Halldór Kristinsson · Hjördís Alexandersdóttir · Hjördís Inga Ólafsdóttir · Ingibjörg Sigurðardóttir · Jakob Emil Líndal · Jenný Hjálmtýsdóttir · Jón Aðalsteinn Þorgeirsson · Jón Ívarsson · Jónína Magnúsdóttir / Ninný · Katrín Matthíasdóttir · Kristín Hjaltadóttir · Kristín Hjartardóttir · Larysa Yermolenko · Linda Guðlaugsdóttir · Louise Betremieux · Margrét Mjöll Sindradóttir · Maria González Sigurjóns · Marta Ólafsdóttir · Mathilde Morant · Ólöf Björg Björnsdóttir · Ólöf Svava Guðmundsdóttir · Ólöf Ingólfsdóttir · Ragnar Hólm Ragnarsson · Ragnheiður Valgarðsdóttir · Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir · Rósa Traustadóttir · Sesselja Jónsdóttir / Sessa · Sigríður Ásgeirsdóttir / Systa · Sigurlín Grímsdóttir · Svanheiður Ingimundardóttir / Svansý · Svanhildur Guðmundsdóttir · Vicente Garcia Fuentes · Vilborg Gunnlaugsdóttir · Þiðrík Christian Emilsson · Þorbjörg Kristinsdóttir · Þórdís Zoëga
Nánari upplýsingar og skráning í félagið:
www.vatnslitafelag.is
vatnslitafelag@gmail.com
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri á Borgarbókasafninu Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is