BORGARBÓKASAFNIÐ

Í Artótekinu er til leigu og sölu myndlist eftir myndlistamenn í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Markmiðið er að kynna íslenska samtímalist og gefa almenningi kost á að leigja eða eignast listaverk á aðgengilegan og hagkvæman hátt.
Verkin leigð og seld til almennings og fyrirtækja. Leiga eða greiðsla á mánuði er frá 4.000 kr. til 15.000 kr. og fer upphæðin eftir kaupverði listaverksins. Lánþegi getur hvenær sem er á leigutímanum keypt listaverkið og dregst þá frá verðinu áður greidd leiga. Hægt er að greiða listaverkin með mánaðarlegum greiðslum eða staðgreiðslu.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, deildarbókavörður
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra myndlistarmanna
sim@sim.is