![Hannaðu þitt eigið skrímsli!](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/smidja.jpg?itok=hUkdKh6j)
Um þennan viðburð
Smiðja | Hannaðu þitt eigið skrímsli!
Rit- og myndhöfundurinn Alexandra Dögg Steinþórsdóttir leiðbeinir krökkum við að skapa sín eigin skrímsli, allt frá hugmynd til fullskapaðs skrímslis. Börnin eru sérstaklega hvött til að skapa sitt skrímsli út frá eigin áhuga og reynslu. Við skoðum líka hvernig gaman er að vinna með hversdagsleg fyrirbæri og hvernig ímyndunaraflið getur breytt þeim í furðuverur.
Smiðjan er í tengslum við sýningu Alexöndru Daggar, Skissur verða að bók.
Alexandra Dögg fæddist á Akureyri 1991 en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún er með diplóma í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík og hefur myndlýst fyrir fjölda aðila, svo sem Bíó Paradís, Þroskahjálp, Reykjavíkurborg og ASÍ. Alexandra Dögg vinnur mest með vatns -og gouache liti.
Hennar fyrsta bók Mér líst ekkert á þetta kom út árið 2023 en Alexandra Dögg hefur skapað furðusögur og gert myndir frá barnsaldri.
Á sýningunni verður hægt að sjá allt efnið sem Alexandra Dögg vann að í sköpunarferli bókarinnar, frá fyrstu skissum yfir í loka afurðina.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100