Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska og enska
Föndur

Tilbúningur | Skemmtileg bókamerki

Fimmtudagur 9. apríl 2026

Nú fer að styttast í vorið og þá er tilvalið að koma saman og föndra skemmtileg, litrík bókamerki, fyrir allar þær bækur sem á að lesa í vor og sumar.  

Allur búnaður verður á staðnum svo það er bara mæta og hafa það huggulegt. 

 

Tilbúningur er viðburðaröð sem fer fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal frá kl. 15:30-17:30.  

Eigum saman notalega stund, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinendur koma með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoða við tilbúninginn.  

Tilbúningur hentar skapandi fólki á öllum aldri. Börn yngri en 8 ára komi í fylgd með forráðamanni.  

 

Kostar ekkert og engin skráning.  

 

Nánari upplýsingar veitir,  
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir  
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is