AFLÝST Fantasíuklúbbur

Fantasíu klúbbur Borgarbókasafnið

Vinsamlegast athugið að klúbbnum hefur verið aflýst á þessar önn af óviðráðanlegum ástæðum. Vonumst til að geta byrjað aftur í haust.

Klúbbur fyrir fantasíuaðdáendur 14-99 ára.

Í klúbbnum ætlum við að eiga notalega stund og spjalla um allt sem viðkemur fantasíum, svo sem bókum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.

Við hittumst á Borgarbókasafninu Grófinni, 5. hæð tvisvar í mánuði á laugardögum kl. 14:00-15:30
Dagsetningar: 20. janúar, 3. febrúar, 17. febrúar, 2. mars og 16. mars

Klúbburinn er ætlaður þeim sem eru nýlega farin að hafa áhuga á fantasíum og þeim sem eru lengra komin í fantasíuheiminum. Aðalatriðið er að hitta önnur sem hafa brennandi áhuga á öllu sem tengist fantasíum.

Á fyrsta hittingnum ætlum við að ræða hvað við viljum taka fyrir í klúbbnum.

Öll velkomin í þennan glænýja fantasíuklúbb á safninu!

Klúbbstjóri er Sigurrós Sóley Jónsdóttir.

Viðburðurinn á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurrós Sóley Jónsdóttir , Bókavörður
sigurros.soley.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6100