Anime I Klúbbar
Anime klúbbur í Grófinni fyrir 9-12 ára hittist fyrst þann 18. janúar
Anime klúbbur í Grófinni fyrir 13-16 ára hittumst 19. janúar
Langar þig að teikna, spila, spjalla, föndra, horfa á þætti, glugga í bækur eða bara "tjilla" með krökkunum? Þá er Anime klúbburinn eitthvað fyrir þig! Anime klúbburinn hefur verið starfræktur frá því í byrjun árs 2021 og fjölmargir krakkar meðlimir.
Þátttaka er án endurgjalds en skráning er nauðsynleg fyrir 9-12 ára hópinn. 13-16 ára geta skráð sig neðst á síðunni.
Fullbókað er í klúbbinn fyrir 9-12 ára.
Í söfnunum er veglegt safn af Anime bókum sem hægt er að fá að láni.
Börn og ungmenni undir 18 ára aldri fá frítt bókasafnskort
Anime fyrir 9-12 ára. Við hittum fimm sinnum á önninni:
18/1, 15/2, 15/3, 19/4, 17/5 kl. 15.00-16.30 Grófinni (á 5. hæð)
Opinn Anime klúbbur fyrir 13-16 ára - hefst 19. janúar
Borgarbókasafnið Grófinni (á 5. hæð)
Alla fimmtudaga kl. 16.30 - 18.00Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s. 868 1851
Animeklúbburinn er í samstarfi við Íslenska Myndasögusamfélagið.
Í Borgarbókasafninu Gerðubergi, Grófinni og Spönginni er veglegt safn af Anime bókum og unglingar undir 18 ára aldri þurfa ekki að greiða fyrir bókasafnskort.
Verkefnið hefur hlotið styrki frá Barnamenningarsjóði, Hverfasjóði Reykjavíkurborgar, Bókasafnssjóði og Landsvirkjun.
Neðst á síðunni er hægt að skrá sig í Anime fyrir 13-16 ára.
Fimmta hæðin í Grófinni
Á fimmtu hæðinni er veglegt safn af Anime bókum en einnig er þar að finna tónlistarverkstæði sem er tilvalið fyrir þau sem hafa áhuga á tónlist og myndvinnslu. Verkstæðið er fullbúið iMac tölvum og midi hljómborðum, með fjöldann allan af tónlistarforritum svo það er bæði hægt að semja tónlist og taka upp. Einnig forrit fyrir þá sem hafa áhuga á margmiðlun, er aðgangur að Adobe Creative Suite og Final Cut Pro fyrir margskonar myndvinnslu og hönnun.
Sjá nánar um Verkstæðið